
Á Vesturbakka rísa 118 glæsilegar íbúðir. Heillandi staðsetning við sjávarsíðuna á miðju höfuðborgarsvæðisins með tengingu við Borgarlínu.
Lagt er upp úr vel byggðu húsnæði með öllum nútíma þægindum og fallegri hönnun. Þetta verða einstakar eignir fyrir þá sem vilja aukin lífsgæði.
Innan húskjarnans er skjólgóður inngarður og til suðurs er hið einstaka hafnarsvæði þar sem Kópavogsbær stefnir að uppbyggingu.



Öll umgjörð bygginganna er miðuð að íbúum sem kunna að meta vandaðan lífsstíl, hugað er vel að öllum byggingarefnum og búið þannig um að hver íbúð hafi sitt eigið loftskiptikerfi sem eykur heilnæmi íverurýma.

Tveir innanhússhönnuðir leggja upp með ólík hönnunarþemu fyrir íbúðirnar. Annars vegar er það Sæja, sem er innanhússhönnuður, en hennar þema hefur fengið heitið Ylur, og hins vegar Björn Skaptason arkitekt, en hans þema hefur verið nefnt Steinn.


Íbúðirnar búa yfir auknum gæðum og eru mjög fjölbreyttar. Hægt er að velja íbúðir með fata- og baðherbergi inn af hjónasvítum, aukinni lofthæð, góðu aðgengi, eldstæði, þaksvölum, heitum potti, bílskúr og snjallstýringum á ljósum og hita.
Í hluta íbúðanna verður hægt að hafa áhrif á innanhússhönnun og verða þakíbúðir afhentar fokheldar. Kaupendur hafa því tök á að sníða íbúðirnar að sínum smekk.



Húsin eru hæst til norðurs og trappast niður til suðurs til þess að sólarljós nái í sem flesta kima bygginganna. Inngarðurinn verður skjólgóður með grænu svæði og hefur hluti íbúða á jarðhæð sérafnotareit. Þá eru íbúðirnar á efri hæðum með rúmar svalir og þær á efstu hæðum skarta þakgörðum með óviðjafnanlegu útsýni út á hafið.


Byggingarnar standa við höfnina þar sem nýtt og framsýnt skipulag er í kortunum hjá Kópavogsbæ og hefur Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri fjallað um hugmyndir bæjarins fyrir svæðið í Viðskiptablaðinu.
Höfnin mun bjóða upp á huggulegt svæði þar sem meðal annars er gert ráð fyrir veitingahúsi ásamt aðstöðu til sjósunds. Þá er beint fyrir framan glæsileg hafnaraðstaða þar sem siglingaáhugafólk getur haft bát við bryggju.
Með komu Fossvogsbrúarinnar mun opnast leið að miðbæ Reykjavíkur og setja Háskólana og Nauthólsvíkina í göngufæri.


Þakíbúðirnar búa yfir einstöku sjávarútsýni þar sem gólfsíðir gluggar fá að njóta sín til fulls. Íbúðirnar búa yfir aukinni lofthæð og hafa stórar timburlagðar þaksvalir. Möguleiki er á að koma fyrir heitum potti á þaksvölunum.
Íbúðirnar hafa snjallstýringu á ljósum og hita og vélræna loftræstingu. Þá eru möguleikar á að koma fyrir eldstæði í stofu.
Lagt er upp úr því að allt efnisval sé til fyrirmyndar og búið miklum gæðum. Þá eru innréttingar valdar með tilliti til klassískrar hönnunar og endast í öllum skilningi.
Undir húsunum er stór bílakjallari með góðu magni einkastæða en einnig eru stæði fyrir íbúa og gesti við húsið. Þá fylgir hluta íbúðanna frístundaskúr í bílakjallara.


Stór hluti íbúðanna er með einkastæði í bílakjallara en þar eru 103 stæði. Þá eru 56 bílastæði á lóðinni en af þeim eru 6 fyrir hreyfihamlaða.

