Vesturbakki

Sæja innanhússarkitekt

Sæja Interiors sá um að hanna hluta af tillögum að innanhússhönnun í verkefninu við Vesturbakka. Hún nýtur þegar mikillar virðingar og hefur komið að fjölda verkefna.

Það sem einkennir verkin eru andstæður þar sem blandað er saman ólíkum efnum og áferðum við hreinar línur þar sem smáatriði og lýsing skipta máli. Rýmin eru vel úthugsuð en um leið áreynslulaus og hlýleg. Rými sem eldast vel og heimili þar sem gott er að búa.

Litapalletta Sæju er kölluð Ylur:

Vesturbakki
Vesturbakki
Vesturbakki

Innanhússhönnun Björn

Innanhússhönnun verkefnisins byggir á rólegri og fágaðri efnisnotkun þar sem innblástur er sóttur í birtu, hafflötinn og náttúrulegt yfirbragð strandarinnar. Markmiðið var að skapa björt og tímalaus rými sem veita hlýja og yfirvegaða upplifun. Ljóst yfirbragð skapar gott mótvægi við útlit bygginganna bæði gagnvart formi og efnisvali þeirra.

Innréttingar eru hannaðar í ljósgráum tónum með vandaðri áferð sem skapar hreint og stílhreint yfirbragð, þar sem einfaldleiki og gæði fá að njóta sín. Ljósir tónar, náttúruleg birta og opin rými vinna saman að því að skapa létta og rólega stemningu sem tengist umhverfinu fyrir utan. Heildaryfirbragðið er látlaust en sígilt — hannað til að eldast vel og skapa notalegt og vandað heimili við hafið.

Litapalletta Björns er kölluð Steinn:

Vesturbakki
Vesturbakki
Westurbakki

Hágæða heimilistæki og innréttingar

Í íbúðunum verða innréttingar frá Parka eða Voke III og heimilistækin frá Siemens en tækin frá þeim hafa þegar fest sig í sessi fyrir gæði og endingu. Það má nefna að helluborðið er með innbyggða viftu og hefur möguleika á þráðlausri fjarstýringu.

Í eldhúsi verða ýmist sambyggðir baksturs- og örbylgjuofn, frystir og vínkælir.

Þá verður hússtjórnunarkerfi, kallað free at home, þar sem íbúar geta stýrt meðal annars hitastigi, ljósum og gardínum í íbúðinni. Hver íbúð fær síðan til sín tæknimann til þess að stilla og læra á búnaðinn.

Allar íbúðir eru búnar sér loftskiptikerfi sem stuðlar að betri loftgæðum á hverjum tíma. Auk gólfhita.

VesturbakkiVesturbakki
Vesturbakki

Falleg og vönduð sameign

Sameignir húsanna eru íburðamiklar og rúmgóðar. Þær eru í sama innréttingaþema og íbúðirnar í húsinu. Sameignirnar eru ýmist hannaðar af Sæju eða Birni og bjóða upp á hlýlega aðkomu fyrir íbúa og gesti hússins.

Sameignirnar eru búnar póstkössum og dyrabjöllu með gæðamiklum myndavélum sem eykur öryggi íbúa.