Íbúð 420 – Steinn
Fjögurra herbergja 226,9 fm íbúð með stórum þaksvölum. Kaupendur geta valið á milli þema og hér er íbúðin sýnd í þema Björns, Steinn. Möguleiki á að setja upp arin í stofu og heitan pott á svölum. Íbúðinni fylgir frístundaskúr ásamt 2 einkastæðum í bílakjallara. Fallegt útsýnið fær mann til að draga djúpt inn andann.












































































