
Björn Skaptason arkitekt húsanna við Bakkabraut 9-23 segir frá því sem var honum innblástur við hönnun bygginganna. Það var mikilvægt að sem flestir næðu sjávarútsýni og að þar væri góð breidd íbúðagerða en nánast engin eign er eins.
Lagt var upp með mikil gæði í allri hönnun til þess að hámarka lífsþægindi íbúanna. Staðsetningin gefur góðan aðgang að göngu- og hjólastígum og þegar Fossvogsbrúin verður veruleiki opnast fyrir gangandi og hjólandi umferð til Háskóla Reykjavíkur og miðbæjarins ásamt almenningssamgöngum.

Byggingarstjóri verkefnisins, Óskar Þór Óskarsson, fjallar um gæði bygginganna. Óskar hefur komið að fjölda verkefna í gegnum tíðina og hér gerir hann grein fyrir hverjar áherslurnar eru í efnisvali og framkvæmd.

Í verkefninu var lagt upp með að allt efnisval og hönnun væri til fyrirmyndar og að því kom reynslumikið teymi hönnuða. Hugað var að líftíma byggingarinnar og búið að því að gæðin tækju mið af endingu og tímalausu útliti.