Westurbakki

Hreyfing og slökun við sjávarsíðuna

Við Vesturbakka er einstakt útsýni yfir Reykjanesið, Keili og sjávarsíðuna til þess að njóta á meðan þú ræktar líkama og sál. Hægt er að byrja daginn á góðri hreyfingu en í líkamsræktaraðstöðunni verða hlaupabretti, þrekhjól, lóð og annar búnaður til styrktar- og þolþjálfunar. Úti bíður þín svo heitur og kaldur pottur ásamt gufubaði með einstöku sjávarútsýni.

Vesturbakki
Westurbakki

Fjölbreytt afþreying

Á Vesturbakka þarf hvorki að bíða eftir vorinu né rétta veðrinu til að taka fram kylfurnar. Golfhermir gefur íbúum kost á að æfa sveifluna, halda sér við efnið yfir vetrarmánuðina eða njóta leiks í góðum félagsskap. Hér er einnig hægt að skora á nágrannann í borðtennis eða hitta vini yfir pílukasti. Í frístundaklúbbnum verður fjölbreytt afþreying fyrir alla íbúa sem gefur þeim einstakt tækifæri til að hittast og njóta samveru. Frístundaklúbburinn eykur lífsgæði og hér verður alltaf stutt í skemmtilega tilbreytingu frá hversdagsleikanum.

Vesturbakki